Fréttaskotið!!

Nýjar myndir af hreindýraveiðum 2009

 
OOPS. Your Flash player is missing or outdated.Click here to update your player so you can see this content.
Forsíða arrow F.L.H Hornamæling
F.L.H Hornamæling


Árið 2004 byrjuðu hornamælingar á íslenska hreindýrastofninum. Þá var stofnuð sérstök hornamælingar nefnd innan F.L.H. (Félag leiðsögumanna með hreindýraveiðum) og hefur hún verið starfandi síðan. Meiningin er að gefa út bók eða lista yfir þær krúnur sem mældar eru, en til þess að komast í bók þarf nefndin að fá krúnuna til mælingar.. Í bókinni geta menn séð hvað krúnan þeirra mælist, í hvaða flokk hún lendir og hvar á listanum yfir hæst mældu krúnurnar þeir eru.Hugmyndin er að veita verðlaun (viðurkenningu?) fyrir stærstu krúnurnar og er það hugsað þannig að krúna sem t.d. mælist yfir 360” falli í gull flokk, og krúnur sem mælast á milli 350” og 360” falli í silfur flokk. Krúnur sem mælast undir 350” fá ekki verðlaun en niðurstöður mælinga verða skráðar í bókina ásamt upplýsingum um nafn eiganda, hvar dýrið var veitt og hvenær..

Ekki er þó búið að ákveða nákvæmlega hver lágmörkin verða til að ná krúnu í gull eða silfur flokk en það verður ákveðið eftir komandi veiðitímabil. Þá hafa mælingar staðið í þrjú ár og teljum við okkur vera komin með nógu margar viðmiðunar krúnur til þess að geta ákveðið lágmörkin.

Eitt af fyrstu verkefnum nefndarinnar var að gera kennslubók um hvernig á að mæla krúnurnar og var henni dreift á alla félagsmenn í F.L.H. Það geta því flestir leiðsögumenn mælt krúnur fyrir veiðimenn.
Myndirnar sem eru undir liðnum ” Hornamælingar “ eru lítið brot af því sem nefndin hefur mælt og eru þær fyrst og fremst settar inn til gamans og einnig til glöggvunar fyrir þá sem kannski luma á stórri krúnu og telja hana eiga erindi í bókina.

Allar nánari upplýsingar veitir nefndin en í henni eru:


Albert Jensson S:893 4013 og 478 8107
Kápugili
765 Djúpavogi
albertdora@simnet.is

Rán Þórarinsdóttir S: 866 5756 og 471 2813
Fjósinu Helgafelli 3
701 Egilsstaðir
ran@na.is

Reimar Ásgeirsson S: 426 8868 og 891 8878
Stekkjartröð 10
700 Egilsstaðir
reimara@simnet.is
-----------------------------------------------------------

 

(C) 2010 Lifandiuppstoppun.com