Fréttaskotið!!

Nýjar myndir af hreindýraveiðum 2009

 
OOPS. Your Flash player is missing or outdated.Click here to update your player so you can see this content.
Forsíða arrow Fyrirtækið
Fyrirtækið


Lifandi uppstoppun var stofnað árið 2004 eftir að ég kom frá uppstoppunarnámi í Kanada og byrjaði að starfa sem uppstoppari. Í C.C.T. í Manitoba lærði ég alla almenna uppstoppun þ.e að stoppa upp dýr í heilu lagi, fugla, fiska og svo það sem kannski vinsælast er þ.e. að stoppa upp hausa með herðunum (Gamehead). Auk þessa lærði ég loðsútun skinna og að hornamæla veiðidýr.

Uppstoppun er það sem lungað úr árinu fer í hjá mér, en auk þess er ég leiðsögumaður með hreindýraveiðum og hef starfsréttindi á veiðisvæðum 1.2.3.4.6.og 7 og hefur veiðitímabilið til þessa verið vel nýtt hjá mér við að leiðsegja skyttur á veiðislóð.
Þá hef ég unnið töluvert með Náttúrustofu Austurlands við talningar á fengitíma hreindýranna og rannsóknum ýmisskonar t.d. kortlagningu burðarsvæða á vorin.
Það gefur auga leið að mikill tími fer hjá mér í hreindýrin, og urðu þau fljótt eitt af aðal viðfangsefnum mínum í uppstoppuninni enda sennilega það veiðidýr íslenskt sem ég þekki lang best.

Tilgangurinn með heimasíðu þessari er fyrst og fremst að sýna þau verk sem ég er að vinna og hef unnið auk þess sem vonandi verður einhver fróðleikur sem einhverjum nýtist sem áhuga hefur á uppstoppun, hreindýraveiðum, hornamælingum eða hreindýrarannsóknum.

04.04.2006
Reimar Ásgeirsson
Stekkjartröð 10
700 Egilsstaðir
S:8918878
------------------------------------------

Vefseturs hönnun og uppsetning:
Gísli Hjörleifsson apríl 2006.
www.veidimadur.is

(C) 2010 Lifandiuppstoppun.com