Fréttaskotið!!

Nýjar myndir af hreindýraveiðum 2009

 
OOPS. Your Flash player is missing or outdated.Click here to update your player so you can see this content.
Forsíða arrow Meðhöndlun
Meðhöndlun

Meðhöndlun veiddra dýra.

Mikilvægt er að þau dýr sem eiga að fara í uppstoppun séu meðhöndluð rétt strax eftir að dýrið er dautt.Annars er hætta á að hamir eða skinn eyðileggist þegar að verkun uppstopparans kemur, þá er einnig mikilvægt að skurður (fyrirrista ) á skinnum sé réttur.Bakteríur eru aðalorsök þess að skinn halda ekki hárum eða fjöðrum ! Þær byrja að fjölga sér um leið og dýrið er dautt og kunna best við sig í hita og raka. Það er því mikilvægt að koma felldu dýri í kælingu sem allra allra fyrst og varast að láta sólarljósið og flugur komast í snertingu við það.

Hreindýrshausar.
Eigi að stoppa upp hreindýrshaus þarf að rista fyrir nógu aftarlega á dýrinu þannig að nóg skinn sé til staðar fyrir uppstopparann.
Best er að gera þetta á dýrinu liggjandi á hryggnum eða hangandi á afturfótunum.
Rist er aftan á framfótunum og áfram fyrir aftan bóginn alveg upp á hrygg báðu megin þannig að skurðirnir mætist á hryggnum, síðan er rist þvert yfir bringukollinn aftast eða rétt framan við kviðskurðinn sem væntanlega var gerður þegar tekið var innan úr dýrinu. Síðan má rista eftir skinninu endilöngu ofan á hryggnum fram hálsinn og alveg fram á hnakka, það auðveldar fláninguna af hálsinum.

Gæta skal að rista alltaf að innan frá og út þ.e. stinga hnífsblaðinu inn undir skinnið og skera út, þannig eru engin hár skorin sundur, best er að nota til þessa fyrirristuhníf með kúlu á oddinum.
Veiðihnífar sem eru með fyrirristu krók (Gut hook) eru ekki góðir til þessa verks þar sem þeir vilja gjarnan skera einhver hár nema ýtrustu varkárni sé gætt.
Eftir að fláningu er lokið er nauðsynlegt að koma hausnum og skinninu í frost strax og er þá best að breiða skinnið upp á hornin þannig að frost komist í það sem fyrst.
Varast ber að vöðla skinninu saman og t.d. setja það í poka, þá kemst frostið seint og illa innst í skinnið vegna þeirrar góðu einangrunar sem er í hárunum..
Ef ekki er hægt að koma skinninu og hausnum í frost strax er nauðsynlegt að flá allan hausinn líka og salta vel..

Til þess að gera þetta þarf að flá innan úr munnvikum augnlokum og flá eyrun, hreinsa allt innan úr grönum o.s.f.v. til að saltið eigi greiða leið að skinninu, því ætla ég ekki að lýsa í smáatriðum þar sem í lang flestum tilfellum er hægt að koma hausnum í frost fljótlega, en þurfi menn að geyma fellt dyr uppi í fjalli til næsta dags er nauðsynlegt að geyma það í rennandi vatni eða á kafi í snjó.

Hreindýr í heilu lagi.
Ef meiningin er að stoppa hreindýr upp í heilu lagi er nánast um sömu fyrirristu að ræða og þegar dýrin eru flegin venjulega en þó er betra að hafa samband við þann uppstoppara sem á að vinna verkið áður en í það er farið.

Loðsútun.
Ef loðsúta á skinnið af hreindýri þarf að vanda fyrirristuna til þess að skinnið verði fallegt á vegg eða gólfi.
Best er að rista fram úr kviðskurðinum sem framkvæmdur var þegar tekið var innan úr dýrinu, fram bringukollinn og fram miðjan hálsinn og gæta þess að rist sé í gegnum miðju hálsskeggsins, síðan er rist innan á framfætinum og þvert yfir bringukollinn báðu megin í skurðinn sem ristur var fram bringukollinn.
Að aftan er rist aftur úr kviðskurðinum og aftur í endaþarm síðan aftan á afturfótum og í endaþarminn.

Að fláningu lokinni er nauðsynlegt að rista aftur úr dindlinum og fjarlægja sem mest alla fitu og kjöt af húðinni hafi eitthvað af því lent með húðinni við fláninguna.
Að þessu loknu þarf að breiða vel úr húðinni á sléttum fleti, hárin niður og holdrosinn upp og salta vel, gæta þess að saltið berist í alla skækla og ekki skemmir fyrir að nudda saltinu í húðina.

Refir og Minkar.
Refum Minkum og öðrum rándýrum er oft hættara við að skemmast heldur en grasbítum ástæðan er fjölbreyttari bakteríuflóra sem í þeim er.
Það er því nauðsynlegt að koma í veg fyrir að maga innihald komist út úr dýrinu og út í skinnið, í gegnum skotgöt vit eða endaþarm.
Það er hægt að koma í veg fyrir með því að fylla þessi göt með ólituðum pappírsþurrkum.
Best er að koma þeim í frost sem fyrst en pakka þeim vel inn í plast áður, ástæðan er sú að ef súrefni kemst óhindrað að dýrunum vilja þau þorna með tímanum og gerir það ómögulegt að flá dýrið og á þetta sérstaklega við um þunn eyrun og trýnið.
Besta plast sem hægt er að nota er þunn plastfilma eða rúlluplast vefja dýrið með plastinu margar umferðir þannig að sem allra minnst loft verði eftir inní, þannig losna menn líka við alla lykt sem fylgir gjarnan þessum dýrum og frúin verður ekki eins viðskotaill þegar hún þarf að færa til í frystinum þegar hún leitar að steikinni.

Fuglar.
Fugla þarf að passa vel að því leyti að ekki berist blóð eða aðrir líkamsvessar í fiðrið, það er hægt að koma í veg fyrir með sömu aðferð og lýst var með Refi og Minka einnig þarf að gæta þess að ekki séu skemmdar fjaðrir þegar haldið er á fuglinum t.d. ekki halda um hálsinn heldur lappirnar.
Koma þeim sem fyrst í frost með hausinn undir væng og gæta vel að beygla ekki fjaðrir þegar pakkað er.

Fiskar.
Fiskum er best að koma sem fyrst í frost og reyna að láta þá frjósa beina. Þegar þeir eru orðnir gegn freðnir er gott að taka þá úr frostinu og úða á þá vatni vefja þá í plast eins og áður er lýst og stinga strax aftur í frost, þannig myndast þunn klakahúð utaná þeim og súrefni á ekki eins greiða leið að þeim, (þetta er þekkt geymsluaðferð með t.d. rækjur og aðrar matvörur).

Vandvirkni!
Aðalatriði er að vanda til verka strax í upphafi það eykur líkurnar til muna að afraksturinn verði þannig að öllum líki.

 

(C) 2010 Lifandiuppstoppun.com