Margar hættur steðja að hreindýrum annað en veiðimenn, þessir tarfar voru flæktir í girðingardræsu á fengitíma við Flatey á mýrum í okt. 2005 (svæði 9) þegar ég og Rán Þórarinsdóttir líffræðingur hjá NA komum þar til talninga. Útilokað var fyrir tarfana að losa sig sjálfa og beið þeirra ekkert annað en langur dauðdagi. Sigurður Guðjónsson leiðsögumaður á Borg var fenginn á staðinn og skaut hann hornin af öðrum tarfinum og hljóp hann til fjalla laus við vírinn, en hinn var svo illa flæktur í vírnum að nauðsynlegt var að fella hann. Hægt er að skoða fleiri myndir hér.